Góða kvöldið gott fólk!

jæja ég ákvað að fara skella hérna inn
nokkrum línum inná þessa geggjuðu síðu hérna hjá mér..

heyrðu
allavega allt gott að frétta, skóli, vinna sofa..... þetta er
stundum svoleiðis og stundum bara skóli.. hehe..
Allavega alla dagana eftir áramót vorum við Pálmi ekki að gera
neitt! héngum í einhverjum tölvuleik allar nætur, átum og vorum
ógeðsleg.. svo vöknuðum við seinni part dagsins.. en þetta er
ekkert geggjað skemmtilegt til lengdar en gott að taka svona nokkra
daga..

vel úthvíld fyrir skólann..
En 8 janúar sóttum við stundatöfluna okkar og erum bæði í 18
einingum og bara sátt.. erum saman í bókfærslu og rekstrahagfræði
Svo byrjaði bara skólinn 9 jan og er ég bara búin að vera sinna
honum og minni vinnu.. annars kíktum við í bíó þarna einhvetimann
fyrir skólann með Andreu og Einari á Köld slóð, ÞVÍLÍK snilldar
mynd!! haa, hvað er að ske fyrir íslendinga.. , án djóks var ég svo
spennt að það voru að koma tár og læti.. nei í alvöru, mæli með
henni...
Jájá síðustu helgi var ég bara að vinna en kíkti svo á capone á lau
kveldið.. það var barasta ágætt.. svo er maður búin að vera reyna
stunda ljós eitthvað og síðan verður maður að fara gera e-h í sínum
málum og byrja aftur í ræktinni

hehe.. byrja á mánudagiinn

(komnir doldið margir mánudagar

) hehe en já svo er aðal umræðan í
dag að við stelpurnar förum á Spán í sumar, shit hvað yrði gaman..!
en ég á nú samt í basli við að ræða það við hana móður mína...
kemru í ljós kemur í ljós.. yrði samt ógó gaman!! heyrðu já.......
eg held eg viti ekki mikið meira sem er á dagskránni... nema næstu
helgi er stefnan að fara á þorrablót á Raufarhöfn.. það yrði
megneeð..
En jæja bið að heilsa i dag og verið dugleg að kvitta elskur..=)
Svo vil ég koma með eina afmæliskveðju hérna til hennar Tinnu.. til
hamingju með 17 ára afmælið og vonandi áttiru góðan afmælisdag,
förum nú að sjást vonandi bráðlega:****
Við sveiitttttt í sjallanum hehe..